Fjarkennslunet NVL Distans býður, í samstarfi við NordInfo, til þátttöku í röð klukkustundar langra vefstofa einu sinni í mánuði á vordögum.
Vefstofurnar verða haldnar 13. dag hvers mánaðar í febrúar, mars, apríl en þann 14. maí. Meginþema allra vefstofanna er nýsköpun í námi/kennslu. Distans og Nordinfo (starfshópur upplýsingafulltrúa alþýðufræðslusamtakanna á Norðurlöndum) bjóða sérfræðingum að halda erindi um nýsköpun og sveigjanlegt nám í aðdraganda ráðstefnu á vegum NVL í Osló í júní. Skipulagðar hafa verið röð fjögurra vefstofa sem allar hefjast kl. 13:00 – 14:00 CET (það er að íslenskum tíma kl. 12:00-13:00 í febrúar og mars en 11:00-12:00 í apríl og maí. Fundarstofan er á slóðinni http://frea.emea.acrobat.com/distans Engin þörf fyrir niðurhal á hugbúnaði einungis ókeypis viðbótar.
13. febrúar, með Jørgen Grubbe og framsaga Henrik Helms: Innovasjon i læring
13. mars með Aina L. Knudsen, framsaga Taru Kekkonen: How Online studies can provide a flexible arena for drop outs
13. apríl, NORDINFO: Involvera och engagera lärande
14. maí með Hróbjarti Árnasyni: Mobile learning
Þátttaka er ókeypis en við biðjum þá sem vilja vera með um að skrá sig HÉR. Sjáumst á vefnum!
NVL-DISTANS:
Aina L. Knudsen, Jørgen Grubbe, Hróbjartur Árnason, Karin Berkö, Tiina Front Tammivirta, Torhild Slåtto og Sigrun Kristín Magnúsdóttir
Nordinfo:
Hilde Søraas Grønhovd, Øyvind Krabberød, Larry Kärkkäinen, Johanni Larjanko, Lill Perby och Michael Voss