Sigur hreinskilni og umburðarlyndis
Fyrsta umferð finnsku forsetakosninganna var spennandi barátta um annað sætið. Á endasprettinum bar frambjóðandi flokks græningja Pekka Haavisto nauman sigur úr býtum yfir frambjóðanda Miðflokksins. Eins og vonir stóðu til hlaut Sauli Niinistö, sem spáð hafði verið mest fylgis, flest atkvæði.
Einkunnarorð Pekka Haavistos í kosningabaráttunni voru hreinskilni, umburðarlyndi og alþjóðavæðing. Breið fylking meðal almennings var honum sammála og það fleytti honum inn í aðra umferð kosninganna. Frambjóðandi flokks Sannra Finna fékk aðeins tæplega níu prósent atkvæða. Tveir fulltrúar vinstri fengu samtals aðeins 12 prósent atkvæða.
Nýr forseti verður kosinn í annarri umferð kosninganna þann 5. febrúar næstkomandi.
Meira: http://hbl.fi/nyckelord/presidentvalet-2012
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi