Förstora eller Förminska
Nyckelord/Keywords
Nyckelordsök
Fritext/Free text
Sök/Search:

Hlustum við á þau? Álit fullorðinna notenda náms- og starfsráðgjafar

(2011-11-03 till 2011-11-03)
Þar verða kynntar niðurstöður rannsóknarinnar „Voice of Users“ (skýrslan er aðgengileg á heimasíðu NVL á slóðinni http://www.nordvux.net/download/6821/voice_of_users.pdf) sem fjallar um viðhorf fullorðinna notenda náms- og starfsráðgjafar til gagnsemi þjónustunnar, hvernig endurgjafar á ráðgjöfinni er aflað og að hvaða marki fullorðnir notendur koma að stefnumótun og skipulagi þjónustunnar. Andrea G. Dofradóttir mun kynna niðurstöður könnunarinnar og bera niðurstöðurnar frá Íslandi saman við niðurstöðusr frá hinum Norðurlöndunum. Anders Lovén, frá Háskólanum í Malmö og fulltrúi Svía í sérfræðinganeti NVL um náms- og starfsráðgjöf mun fjalla um niðurstöðurnar úr frá stöðu náms- og starfsráðgjafar í Svíþjóð. Þá munu fulltrúar frá Félagi náms- og starfsráðgjafa, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og námsbraut fyrir náms- og starfsráðgjöf lýsa viðbrögðum við niðurstöðum könnunarinnar. Dagskrá málstofunnar verður send í vikunni.

Plats: Hótel Nordica Hilton, Reykjavík

Arrangör: Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf (SÆNS) og Norræna tengslanetið um fullorðinsfræðslu (NVL) á Íslandi

Kontaktuppgifter: Sigrún Kristín Magnúsdóttir, sigrunkri(hjá)frae.is

Dagskrá (pdf)