Nám fyrir hóp af mentorum í sveitarfélaginu Sermersooq
Ungir atvinnuleitendur í Nuuk geta nú notið góðs af því að velferðarstjórnin hefur í samstarfi við ýmis fyrirtæki menntað 47 mentora. Verkefni þeirra er að undirbúa ungt fólk án atvinnu fyrir, en einnig á meðan á námstímanum stendur, upplýsir sveitarfélagið Sermersooq á heimasíðu sinni.
- Sveitarfélagið hefur boðið upp á námskeið og tengslanet fyrir mentorana, og einnig skipað Pernille Bengtson sem samhæfingaraðila fyrir þá. Hún á að vera tengill mentoranna í sveitarfélaginu Sermersooq, seigir Aaja Chemnitz Larsen.
Jafnframt hefur verið lögð áhersla á leita eftir nemaplássum fyrir unga atvinnuleitendur og jafnframt að þjálfa mentorana. Það hefði ekki verið framkvæmanlegt án stuðnings ótal fyrirtækja sem hefur lagt fram vinnu starfsfólks við verkefnið.
Líta má á þjálfun mentoranna sem nokkurskonar „tvöfalda“ fullorðinsfræðslu, vegna þess að þeir beita þekkingu sinni ekki aðeins til framdráttar ungum atvinnuleitendum heldur einnig þeirra sem fyrir eru í starfsþjálfun hjá fyrirtækjunum.
Birgit Gedionsen
E-post: birgit(ät)suliplus.gl