Kennsla í sænsku fyrir útlendinga ekki í forgangi hjá sveitarfélögunum
Niðurstöður á könnun Skólaeftirlitsins á gæðum og árangri sænskukennslu fyrir útlendinga sýna að þeir sem bera ábyrgð á kennslunni láta hana ekki njóta forgangs. Nokkuð skortir upp á skipulag, framkvæmd og eftirfylgni. Þá er kennslan heldur ekki aðlöguð að þörfum námsmanna.
Til þess að einstaklingur nái góðu sambandi við aðra, geti unnið og tekið virkan þátt í samfélaginu í landinu sem hann býr, verður hann að hafa vald á tungumálinu. Því gegnir sænskukennsla fyrir útlendinga lykilhlutverki. Að kenna útlendingum sænsku krefst sérstakrar færni og aðlögunarhæfileika, en kennararnir fá sjaldan að tilheyrandi stuðning eða hjálpargögn. Því getur farið illa fyrir námsmönnunum, er haft eftir Agneta Kristensson, matsaðila hjá Skólaeftirlitinu. Í skýrslunni má lesa meira um niðurstöður Skólaeftirlitsins auk er þar að finna nokkur fyrirmyndar dæmi.
Nánar: Skolinspektionen.se
E-post: Asta.Modig(ät)skolverket.se