Almennum ráðleggingum og skýringum á náms- og starfsráðgjöf í Svíþjóð fylgt eftir
Sænska skólastofnunin gaf árið 2009 út almennar ráðleggingar og skýringar um náms- og starfsráðgjöf. Efnið kom út bæði á sænsku og ensku.
Ráðleggingarnar eru ætlaðar sem grundvöllur fyrir sveitarfélög við skipulag og framkvæmd náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum, framhaldsskólum og í fullorðinsfræðslu. Almennar ráðleggingar eru ætlaðar embættismönnum og stjórnmálamönnum í sveitarfélögunum, skólastjórnendum, kennurum og náms- og starfsráðgjöfum og öðru starfsfólki á öllum skólastigum þar sem gert er ráð fyrir náms- og starfsráðgjöf.
Ráðleggingarnar nýtast einnig sveitarfélögum og skólum sem vilja leggja mat gæði eigin náms- og starfsráðgjafar. Almennu ráðleggingarnar gilda fyrir alla opinbera starfsemi og skólum ber að fylgja nema þeir geti sýnt fram á að kennslunni sé hagað á annan hátt en standist samt kröfur.
Árið 2011 mun Skólastofnunin kanna hvernig sveitarfélög og skólar nýta almennu ráðleggingarnar til þess að öðlast yfirsýn yfir hver staðan er í landinu. Meðal verkefna Skólastofnunarinnar er að fylgjast með og styðja við þróun náms- og starfráðgjafar í ævimenntun.
Meira um náms- og starfsráðgjöf www.skolverket.se/sb/d/2353
E-post: Asta.Modig(ät)skolverket.se