Landslagið í stjórnmálum Finna breyttist
Flokkur Sannra Finna bar sögulegan sigur af hólmi í þingkosningunum í Finnlandi þann 17. apríl sl. Fylgi flokksins jókst úr 4,1 prósenti og 5 þingmönnum í 19 prósent og 39 þingmenn. Eftir sigurinn telst flokkurinn þriðji stærsti stjórnmálaflokkur landsins
Miðflokkurinn galt afhroð tapaði 16 þingsætum. Að öðru leyti voru kosningarnar jafnar og munur á milli stærstu flokkanna afar lítill. Einingaflokknum tókst að verða fjölmennasti flokkurinn á þingi með 44 fulltrúa (-6)síðan koma Jafnaðarmenn með 42 fulltrúa (-3). Miðflokkurinn verður fjórði stærsti flokkurinn með 35 fulltrúa (-16). Fimmti stærsti flokkurinn er með 14 fulltrúa (-3), og flokkur græningja með 10 fulltrúa(-5).
Stjórnarmyndunarviðræður hefjast eftir páska og Einingaflokkurinn leiðir þær en flokkurinn hefur þegar hafið samræður við flokk Jafnaðarmanna og flokks Sannra Finna. Því er spáð að stjórnarmyndunarviðræðurnar verði einstaklega erfiðar.
Meira: http://svenska.yle.fi/nyheter/artikel.php?id=213809
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi