Í nýlegri þjóðfræðikönnun sem framkvæmd var af af People Group er greining á því hvað einkennir ungu kynslóðina, þá sem fæddir eru eftir 1990, könnunin byggir á viðtölum við átta unglinga. Í heftinu er einnig að finna lýsingu á fyrri kynslóð, þeirra sem fæddir voru á árunum 1960- 1990, x og y.
Greiningin tengir kynslóðirnar við þau tækifæri og sögulegu kringumstæður sem leiða til ákveðinna einkenna hverrar kynslóðar. Kynslóð z er m.a. lýst sem heimakærri, með hugarfar sem sér heiminn í jákvæðri þróun og fullana af tækifærum, hefur mikla þörf fyrir náið samband við fjölskyldu og vini og ein helsta áskorunin er að þau bera sjálf 100 prósent ábyrgð á að þeim farnist vel. Greiningarnar gætu nýst þeim miðlurum sem ná bæði til eldri og yngri markhópa.
Nálgast má heftið á slóðinni
http://issuu.com/insidepeople/docs/insidepeoplegenerationz