Samstarf um þróun les- og skriffærni fullorðinna
SVL og NVL halda í samstarfi við heimastjórn Grænlands ráðstefnu um les- og ritunarfærni fullorðinna í Nuuk 22.-23.mars 9-16.
Ráðstefnan er ætluð þeim aðilum á fræðslusviðinu og á vinnustöðum sem sjá um færniþróun fullorðinna. Kynntur verður árangur með nýjum kennsluaðferðum fyrir fullorðna sem kljást við lestar- og skriförðugleika, nýjum rannsóknum á sviðinu og hvað einstaklingarnir sjálfir geta gert til þess að hvetja til aðgerða. Fyrir þá sem áhuga hafa á að heimsækja háskólann eða aðrar fræðslustofnanir utan þess tíma sem ráðstefna fer fram verða heimsóknir skipulagðar auk annarra tækifæra til þess að kynnast Nuuk.
Nánar á dagatali NVL
Birgit Gedionsen
E-post: birgit(ät)suliplus.gl