23 norsk fyrirtæki taka þátt í nemaáætluninni 2011
Ríkið hefur hrint í framkvæmd nýrri nemaáætlun fyrir fólk sem lokið hefur framhaldsmenntun en er með skerta starfsgetu. Markmiðið með áætluninni er að ná í hæft starfsfólk og veita opinberum stofnunum reynslu til þess að ráða starfsfólk með skerta starfgetu en framhaldsmenntun og aðlaga störfin að þörfum þeirra.
Reynslan af fyrri áætlunum hefur leitt í ljós að þau fyrirtæki sem ráða til sín nema með skerta starfsgetu en framhaldsmenntun njóta ýmissa kosta. Auk þess að leysa tifallandi verkefni í deildinni hefur neminn með færni sinni og lífsreynslu jákvæð áhrif á vinnuumhverfið. Og síðast en ekki síst fá stjórnendur praktíska reynslu, nýja þekkingu og færni til þess að stýra fjölbreytileika á vinnustað.
Nánar: Difi.no
Petter Kjendlie
E-post: kjendlie(ät)nade-nff.no