Sex af hverjum tíu Norðmönnum eru virkir eftir að hafa tekið þátt í Færniáætluninni
Tölur frá færniáætluninni árið 2009 sýna að fleiri en sex af tíu þeirra sem luku verkefninu héldu áfram í vinnu eða í námi.
Færniáætlunin (KVP) er tilboð frá norsku vinnumálastofnuninni (NAV) fyrir þá sem líklegt er talið á að þiggja þurfi félagslega aðstoð til langs tíma. Með skuldbindandi fjárhagsaðstoð og eftirfylgni er stefnt að því að áætlunin geri sem flestum kleift að fá sér vinnu. Markhópurinn er fólk á vinnufærum aldri með verulega skerta starfsgetu en engin eða lítil framlög úr almannatryggingakerfinu. Einstaklingar í markhópnum búa oft við bág lífskjör af heilsufarslegum eða félagslegum ástæðum.
Nánar á: Ks.no
Petter Kjendlie
E-post: kjendlie(ät)nade-nff.no