Fullorðið fólk hefur þroskaða sjálfsmynd, reynslu af bæði vinnu og fjölskyldulífi, formlega hæfni og raunfærni. Fullorðið fólk getur notfært sér það sem það lærir, á vinnustað, í lengra námsferli eða til persónulegs og félagslegs þroska.
Í bókinni er þeim einstöku kringumstæðum lýst, sem gæta verður að þegar skapa á námsnálgun sem hæfir fullorðnum. Í bókinni lýsa fullorðnir einnig fullorðinsfræðslu, forsendum fyrir og hvatningu til þess að taka þátt í námi þegar þess gerist þörf. Hún lýsir einnig grundvallareinkennum náms og hvað hvetur fullorðna og þá togstreitu sem nám getur valdið. Bókin lýsir hvernig unnt er að yfirfæra þekkingu, með öðrum orðum hvernig hægt er að nýta námið við raunveruleg störf. Þá reynir á kennslufræðiþekkingu og færni þess sem leiðbeinir.
Höfundur bókarinnar er Bjarne Wahlgren, prófessor í kennslufræði fullorðinna og stjórnanda danska þekkingarsetursins um færniþróun. (NCK) Bókin heitir: Voksnes læreprocesser – Kompetenceudvikling i uddannelse og arbejde og það er Akademisk Forlag sem gefur hana út.
Nánar: www.akademisk.dk