Auknar kröfur til kennara - kennaraskírteini
Auknar kröfur í sænskum skólum. Kennaraskírteinin verða innleidd frá og með árinu 2012 og hafa í för með sér að einungis kennarar með fastráðningu og einungis þeir sem hafa kennaraskírteini mega gefa einkunnir. Þetta er samkvæmt frumvarpi sem sænska ríkisstjórnin hefur lagt fyrir þjóðþingið.
- Ef við eigum auka gæðin sænska skólakerfisins verðum við að beina sjónum að kennarastarfinu. Við tökum upp nýja kennaramenntun og leggjum mikið undir í aukna símenntun. Kennaraskírteinið verður ákveðinn gæðastimpill, segir Jan Björklund, menntamálaráðherra Svía.
TIl þess að fá skírteinið verður kennari eða leikskólakennari að hafa lokið prófi auk þess að hafa sýnt fram á að vera hæfur til starfa að loknu kynningartímabili sem varir að minnsta kosti eitt ár. Viðurkenndur leiðbeinandi á að veita ráð og stuðning á kynningartímabilinu. Nýju reglurnar ganga í gildi frá og með 1. júlí 2012.
Meira: www.regeringen.se/ sb/d/12466/a/153951
E-post: Asta.Modig(ät)skolverket.se