Stefna um ævilanga ráðgjöf
Mennta- og menningarmálráðuneytið í Finnlandi hefur skipað í samstarfshóp til þess að vinna að tillögum að stefnu um ævilanga ráðgjöf. Skipun hópsins var undirbúin í samstarfi við atvinnu- og iðnaðarráðuneytið.
Stefnan á að taka til allra skólastiga og -forma auk allrar þjónustu varðandi upplýsinga-, ráðgjöf og leiðsögn á vegum atvinnu- og iðnaðarráðuneytisins og í atvinnulífinu að teknu tilliti til fullorðinsfræðslu. Samstarfshópurinn á að skila tillögum sínum fyrir lok febrúar 2011.
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi