Staða menningar í kennslu styrkt
Heilar þrjár vikur í ágúst munu stúdentar hvaðanæva að flykkjast til Helsinki til þess að taka þátt í sumarskóla, sem skipulagður er af sjö háskólum á höfuðborgarsvæðinu í Finnlandi ellefta skiptið í röð. Í þetta sinn er boðið upp á 18 námsskeið á víðtæku sviði. Námsskeið eins og: Consumer Behavior, Wood in Construction and Architecture og Design and the City eru meðal innihaldsríkra og ögrandi námskeiða sumarskólans.
Hugmyndin er að nemendur frá öllum heimshornum jafnt og finnskir stúdentar fái tækifæri til þess að upplifa hvernig akademísk námskeið og menningarviðburðir og atburðir í kviku samfélagi eins og Helsinki geta verið hluti af kennslu. Í ár er metþátttaka, 400 stúdentar frá 50 mismunandi löndum að sögn verkefnastjóranum, Pauliina Mikkonen.
Auk akademískra námskeiða eru í boði fjölmargir skemmtilegir viðburðir, dæmi um þá eru keppni í hefðbundnu kubbakasti, Mölkky, bátasafarí með leiðsögumanni og síðast en ekki síst rótgróin lokaveislan.
www.helsinkisummerschool.fi/home/index
www.helsinki.fi/aktuellt/arkiv/8-2010/9-15-12-32.html
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi