Námsstefna NVL seminar ” Gæði – hvernig?”
Norræna tengslanetið um nám fullorðinna (NVL) býður til námsstefnu fyrir alla sem hafa áhuga á gæðum og gæðamálum tengdum námi fullorðinna.
Er unnt að kerfisbinda starfsemi fullorðinfræðslunnar á þann hátt að hægt verði að ræða um gæðatilboð? Á námsstefnunni verður gæðahringurinn kynntur sem og norræn dæmi um hvernig unnt er að efla gæðavitund og auka gæði með stefnumótun, innleiðingu, mati og eftirfylgni. Á þann hátt vill tengslanetið leggja sitt af mörkum við yfirgripsmiklar umræður um gæði og gæðatryggingu.
Kaupmannahöfn 14.október 10:00 – 15:30
FUHU Konferencecenter
Auditorium 1
Fiolstræde 44
DK 1171 København K
Þátttaka í námsstefnunni er ókeypis.
Rafræn skráning þarf að berast fyrir 8. október
Hægt er að skrá sig á: LINK
Boð: PDF
Jakob Sletten
E-post: sletten(at)nade-nff.no