Menntunaráæltun
Þekking og hæfni (Kunnig) um færniþróun þeirra sem starfa við fræðslumál, hófst þann 31. maí sl. um leið og samband héraðsstjórna birti ákvarðanir um styrki til fræðsluaðila eða samstarfs þeirra.
Markmið áætlunarinnar er að þróa sí- og endurmenntun starfsfólks í fræðsstofnunum. Það er í samræmi við skyldu fræðsluaðila til að skipuleggja sí- og endurmenntun fyrir starfsmenn, en hún verður staðfest með lögum sem taka gildi þann 1. janúar 2011. Áætlunin tekur yfir þá sem starfa við fræðslu í grunn- og framhaldsskólum, starfsmenntun, starfmiðaða fullorðinsfræðslu og alþýðufræðslu. Með áætluninni er ætlunin að leggja grundvöll að skipulagðri sí- og endurmenntun til þess að viðhalda starfsfærni starfsfólksins.
Í fjárlögum ársins 2010 er gert ráð fyrir að verja skuli átta milljónum evra til áætlunarinnar. Ábyrgð á verkefninu er á höndum, menntamálráðuneytisins, Menntamálastofnunarinnar og sambandi héraðsstjórna.
Nánar...
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi