Þeim fjölgar sem ljúka námi frá finnskum háskólum
Stúdentum sem ljúka námi frá háskólunum hefur fjölgað um 10 hundraðshluta. Samkvæmt upplýsingum frá finnsku hagstofunni luku 44 prósent háskólamenntun sinni á fimm og hálfu ári, en talan var 12 prósentum lægri árið áður. Á öðrum sviðum menntunar var gegnumstreymið nánast óbreytt frá árinu áður.
Fjölgun háskólaprófa má að einhverju leiti skýra með umbótum háskólanna á prófakerfinu. Samkvæmt nýja kerfinu ljúka flestir lægri háskólagráðu áður en þeir ljúka æðri gráðu frá háskóla. Stúdentum gefst nú kostur á að ljúka einungis lægri háskólagráðu. Tölurnar ná einnig yfir þá stúdenta sem voru í námi á meðan eldra prófakerfið var í gildi eða fram að áramótum 2008. Af þeim sem hófu nám árið 1995 höfðu 80 % lokið námi sínu fyrir 2008.
www.minedu.fi/etusivu/arkisto/2010/0306/resume.html?lang=fi
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi