Ný þekkingarmiðstöð fyrir menntun
Þekkingarmiðstöð fyrir menntun verður komið á fót í Noregi. Stjórnmálamenn, fræðsluaðilar og aðrir hagsmunaaðilar vilja fá svar við spurningunni hvað það er sem eykur gæði í menntakerfinu.
Hinni nýju miðstöð er ætlað að leita með logandi ljósi að öllum vísindagreinum um viðfangsefnið sem birtar hafa verið bæði í Noregi og annarsstaðar. Vísindaráði hefur verið falið að koma miðstöðinni á laggirnar. Miðstöðin á að setja saman og miðla rannsóknum á menntasviðinu í heild sinni. Þekking sem varðar gæði menntunar í leikskólum, grunnnámi og kennaranámi er efst á verkefnalistanum.
Nánar: Forskningsradet.no
Jakob Sletten
E-post: sletten(at)nade-nff.no