Ungt fólk hvatt til þess að leita sér að vinnu sjálft
Stuðningur við ungt fólk til þess að koma sér í vinnu er veittur með útgáfu Sanssi-kortsins sem er ætlað vinnuveitendum og byggir á ríkisstyrk til niðurgreiðslu launa. Nýútskrifaður unglingur getur fengið Sanssi-kort á þjónustuskrifstofum vinnumálastofnunar um leið og útbúin er persónuleg áætlun um atvinnuleit fyrir viðkomandi.
Niðursveiflan í finnska hagkerfinu hefur aukið atvinnuleysi meðal ungra Finna. Í lok mars voru samtals 32.500 atvinnuleitendur undir 25 ára aldri sem er 3.500 fleiri en í mars 2009. Þar að auki er þess vænst að atvinnuleysi meðal ungra Finna muni aukast verulega þegar skólaárinu lýkur í byrjun júní.
Til þess að bæta ástandið hefur finnska ríkisstjórnin veitt 77 milljónum evra til aðgerða sem beinast að því að draga úr atvinnuleysi meðal ungs fólks. Í samkomulaginu sem þingið hefur samþykkt er gert ráð fyrir fjárframlögum til styrkja til þess að stofna fyrirtæki, til fræðslu fyrir þá sem vilja stofna og reka fyrirtæki og niðurgreiðslu launa. Með aukafjárveitingunni er gert ráð fyrir að veita 15.000 ungum atvinnuleitendum atvinnu eða menntun.
Nánar: www.tem.fi/?89507_m=99059&l=sv&s=2467
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi