Lámarksfærni í upplýsingatækni meðal innflytjenda
Meðal innflytjenda í Noregi hafa 41 prósent ekki næga færni í upplýsingatækni, á meðan hlutfallið meðal annarra íbúa er undir 27 prósentum. Skýrslan „Innflytjendur á netinu“ (Innvandrere på nett) leiðir í ljós að það er afgerandi munur á færni og beitingu upplýsingatækni.
Á meðal innflytjenda nota 9 af hverjum 10 tölvur og flestir nota Internetið daglega. Notkunin felst helst samskiptum og margir segjast nota tæknina til þess að viðhalda samskiptum við heimaland sitt. Yfirfærsla þeirrar færni til annarra sviða upplýsingatækninnar er sjaldgæf. Margir innflytjendur eru reiðubúnir til þess að læra meira, en finnst tækifærin til þess fá. Þeir óska sér fleiri tækifæra á vegum hins opinbera.
Skýrsluna er hægt að nálgast á: www.vox.no/upload/10780/Innvandrere_pa_nett.pdf Jakob Sletten
E-post: sletten(at)nade-nff.no