Tilboð um framhaldsnám fyrir kennara
Frá og með næstkomandi hausti geta kennarar, sem kenna fullorðnum grunnleikni eða innflytjendum norsku, lagt stund á fjarnám við háskólann í Bergen, háskólann í Stavanger, UiS og háskólann í Vestfold, HiV. Námsleiðirnar veita 30 einingar.
Námið í norsku fyrir innflytjendur felst eingöngu í fjarnámi við háskólann í Bergen, á þann hátt er auðveldara að leggja stund á námið samhliða starfi. Námið í grunnleikni við UiS og HiV felst hinsvegar bæði í staðarlotum og fjarkennslu. Báðar námsleiðirnar eru í samstarfi við Vox. Síðastnefnda leiðin er hluti af áherslu Vox á grunnleikni í atvinnulífinu (BKA áætlunina).
Nánar: www.vox.no/templates/CommonPage.aspx?id=4852&epslanguage=NO Jakob Sletten
E-post: sletten(at)nade-nff.no