Menntaskólaverkfræðipróf í nýjum framhaldsskóla
Um þessar mundir er unnið ötullega að endurbótum á skólakerfinu í Svíþjóð. Miklar breytingar verða á framhaldsskólastiginu bæði hvað varðar skipulag og innihald. Meðal breytinganna er að unnt verður að ljúka prófi til starfsréttinda á framhaldsskólastigi. Breytingarnar á framhaldsskólanum munu einnig hafa áhrif á fullorðinsfræðslu.
Ríkisstjórnin telur að það eigi að vera hægt að ljúka menntaskólaverkfræðiprófi eftir fjögurra ára tækninám í nýja framhaldsskólanum.
Meðal annarra, hefur sænska hagstofan, bent á að á næstu árum muni margir verkfræðingar með styttri menntun, þ.e.a.s menntaskólaverkfræði og háskólaverkfræði fara á eftirlaun. Þess vegna er þörf fyrir nýjar, aðlaðandi en stuttar námsleiðir í verkfræði.
Sænska ríkisstjórnin ætlar að fela Skólamálastofnuninni að gera tillögu um hvernig tækninámsleiðin í nýja framhaldsskólanum á að vera. Nemendur á tæknibrautinni eiga að hafa góðan undirbúning undir bæði tækninám á háskólastigi og valfrjálst fjórða tækniár í framhaldsskólanum. Fjórða árinu á að ljúka með menntaskólaverkfræðiprófi. Prófið á að hafa skýra tilvísun til starfs og spanna þekkingu sem þörf er fyrir á vinnumarkaði.
www.regeringen.se/sb/d/2279/a/135426
E-post: Asta.Modig(ät)skolverket.se