Fyrirmyndir í námi fullorðinna
Á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins þann 26. nóvember sl. hlutu þeir Sigtryggur Gíslason og Vilhjálmur Örn Halldórsson viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr í námi fullorðinna á árinu 2009.
Báðir höfðu gengið í gegn um mat á raunfærni í trésmíði og í framhaldinu sótt ýmis námskeið til þess að efla sjálfstraust sitt og ná tökum á lesblindu sem hafði verið þeim fjötur um fót allt frá upphafi skólagöngu. Í dag sækja þeir Sigtryggur og Vilhjálmur Örn báðir námsleiðina Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum hjá Símey.
Afhending verðlaunanna www.frae.is/um-fa/arsfundir/vidurkenningar-myndskeid/ Sigrún Kristín Magnúsdóttir
E-post: sigrunkri(ät)frae.is