Áskoranir um þekkingu í byggingariðnaði
Byggingariðnaðurinn er geiri sem verður sérstaklega illa úti í efnahagssveiflum. Innan geirans er bent á að þörf sé fyrir að auka þekkingu þeirra sem starfa inna hans. Landssamband byggingariðnaðarmanna hefur tekið upp samstarf við VOX til þess að virkja fleiri til þátttöku í áætluninni um eflingu grunnþekkingar í atvinnulífinu.
Fræðslustjóri sambandsins Jørgen Leegaard dregur einfaldlega saman: „Duglegt fólk skapar tekjur. Ef fyrirtækin eiga að lifa af á vinnumarkaði framtíðarinnar þá verða þau að veðja á starfsfólkið. Og til þess að starfsfólkið geti sinnt störfum sínum þarf það að búa yfir þekkingu. Þá verða viðskiptavinirnir ánægðir og fyrirtækið þénar peninga.“ Þetta framtak er hluti af áætlun VOX um að bæta grunnþekkingu í atvinnulífinu. Nú þegar hefur verið lýst eftir umsóknum um 65 milljónir norskra króna frá fyrirtækjunum.
Nánar: www.vox.no/templates/CommonPage.aspx?id=4319&epslanguage=NO
Nánar: www.bnl.no/article.php?articleID=1095&categoryID=6
Jakob Sletten
E-post: sletten(at)nade-nff.no