Fleiri náms- og starfsráðgjafar virkjaðir í þágu atvinnuleitenda
Þann 28. október var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi, taka þátt í að ná til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni. Atvinnuleysi er mismunandi eftir svæðum. Mest er atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Þörfin fyrir náms- og starfsráðgjöf hefur aukist mjög mikið og þetta er liður í því að hægt verði að mæta ráðgjafaþörfinni á vegum Vinnumálastofnunar.
Meira: www.frae.is/frettir/nr/299/ Sigrún Kristín Magnúsdóttir
E-post: sigrunkri(ät)frae.is