Framlög til símenntunar kennara tvöfaldað
Menntamálaráðherra Finna, Henna Virkkunen hefur skýrt frá því að ríkið ætli að tvöfalda framlög til símenntunar kennara á næsta ári, samtals verður upphæðin yfir 21 milljón evra. Af þeim verður 8 milljónum veitt í nýtt Osaava – verkefni.
- Á næsta ári verða um það bil 34.000 kennarar sem geta tekið þátt í símenntun með styrk frá ríkisvaldinu segir Virkkunen. 87 % kennara sækja sér símenntun á hverju ári en þeim hefur fækkað á síðustu árum. Markmið Osaava verkefnis er að snúa þeirri þróun.
- Sérhver kennari á rétt á og ber skylda til að taka þátt í símenntun til þess að halda sér við í starfi og þróa færni sína. Kennaramenntun er samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum ennþá eftirsóknarvert og nýtur mikillar virðingar í Finnlandi. Við verðum að tryggja að færustu kennararnir okkar vilji halda áfram störfum fyrir okkur. Sérstakur markhópur eru kennarar sem fram til þessa hafa ekki haft tækifæri til þess að sækja sér símenntun segir Virkkunen.
Virkkunen menntamálaráðherra mun einnig beita sér fyrir stuðningi við stjórnendur skóla. Stjórnun skólanna getur haft umtalsverð áhrif á námsárangur, líðan allra í skólanum og viðhorf kennara til vinnu sinnar. Það hefur áhrif á vilja þeirra til þess að halda áfram í starfi sem kennarar.
- Við teljum að það felist umtalsverð áskorun i því að fá hæfa og áhugasama skólastjóra í stað þeirra sem á næstu árum fara á eftirlaun. Í Osaava verkefninu er einnig þáttur sem tekur á menntun fyrir stjórnendur skóla, segir Virkkunen.
Nánari upplýsingar:
www.minedu.fi/OPM/Julkaisut/2009/Osaava.html?lang=sv
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi