Frumvarp til fjárlaga: aukin framlög til menntunar og vinnumarkaðsmála
Í frumvarpi sænsku ríkisstjórnarinnar er lagt til að auka framlög til menntunar, hluti fjármagnsins er ætlað til þess að fjölga nemaplássum í ýmsum greinum og hluta til þess að bæta menntun kennara. Þar að auki eru tillögur um að gera sérstakt átak í málefnum flóttamanna.
Í fjárlagafrumvarpinu er einnig aukin framlög sem ætluð eru kennurum og kennarastarfinu. Markmiðið er að auðvelda skólunum að ná markmiðum sínum. Lagt er til að 102 milljónum króna verði veitt til þess að auka hróður kennarastarfsins og auka gæði menntunar þeirra. Þar að auki eru 19 milljónir sem ætlaðar eru til þess að markaðssetja nýja kennaramenntun og vekja áhuga unglinga á starfinu. Gefa á reynslumiklum leiðbeinendum tækifæri til þess að bæta við menntun sína og ljúka kennaraprófi. Samtals er lagt til að verja 84 milljónum króna til þessa lið á árunum 2010 - 2012. Meðal annars er lagt til að meta raunfærni kennaranna til þess að auðvelda og stytta námstíma.
Til þess að bæta flæði umsókna flóttamanna um landvist verður innleiddur sérstakur bónus fyrir flóttamenn sem eru í starfnámi eða eru út á vinnumarkaðnum tækifæri til þess að bæta fjárhag sinn.
www.regeringen.se/content/1/c6/13/20/13/25857c94.pdf
E-post: Asta.Modig(ät)skolverket.se