Finnar mennta sig betur en áður líka erlendis
Fleiri Finnar sem eru orðnir 20 ára sækja sér menntun en meðaltal annarra þjóða sem standa að Efnahags og framfarastofnun Evrópu (OECD). Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu stofnunarinnar um menntun: „Education at a Glance“ fyrir árið 2009.
Þá fækkar Finnum á vinnualdri sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastig. Hlutfall þeirra minnkar í takti við að fjölmennir árgangar fara á eftirlaun. Árið 1997 hafði þriðji hver Finni á aldrinum 25 - 64 ára aðeins grunnskólapróf en tíu árum síðar hafði þeim fækkað enn frekar og hlutfallið komið niður fyrir 20 prósent.
Að fleiri sækja sér menntun er eykur ekki aðeins við þekkingarforða þjóðarinnar heldur hefur einnig í för með sér að einstaklingar fara seinna út á vinnumarkaðinn. Færri Finnar á aldrinum 20 - 29 ára eru komnir út á vinnumarkaðinn en að meðaltali í öðrum OECD ríkjum. Önnur áskorun sem blasir við menntakerfinu er að halda unglingum undir 20 ára í menntun til þess að þeir verði virkir þátttakendur í samfélaginu.
Finnum sem leggja stund á nám utan Finnlands fjölgar stöðugt. Mestra vinsælda nýtur Svíþjóð, þangað sækja um 40 prósenta þeirra sem stunda nám erlendis. Þar á eftir er Stóra Bretland, Þýskaland, Bandaríkin og Eistland.
www.minedu.fi/OPM/Tiedotteet/2009/09/Education_at_a_glance.html?lang=sv
E-post: Pirkko.Sartoneva(ät)vsy.fi