Sérstakur stuðningur fyrir fullorðna
Hvernig er hægt að auðvelda fullorðnum einstaklingnum með skerta getu að leggja stund á nám? Sænska sérkennslustofnunin hefur nýlega gefið út rit þar sem reynt er að svara þessari spurningu. Boðskapur ritsins er að allir eigi að hafa jafnan rétt til náms.
Í ritinu eru kynnar mismunandi leiðir til stuðnings, lýst hver ber ábyrgð á þeim og hvaða tækifæri standi fullorðnum með skerta starfsgetu til boða. Í ritinu eru einnig tíunduð lög og reglugerðir um málefni fatlaðra og menntunar á sviði náms fyrir fullorðna. Ritið ”Att göra studiesituationen tillgänglig för vuxna med funktionsnedsättning” eða Að auðvelda aðgengi fatlaðra fullorðinna að námi, er fyrst og fremst ætlað fullorðinsfræðsluaðilum, stjórnmálamönnum, skólastjórnendum, kennurum og námsráðgjöfum.
Nánar á:
www.spsm.se/-System-/Nyhetsarkiv/Information-om-stodinsatser-for-vuxna/
E-post: Asta.Modig(ät)skolverket.se