Nýtt norrænt veftímarit um atvinnulífið
Fjármálakreppan hefur valdið því að mörkin milli þess að vera í starfi og að vera atvinnulaus eru orðin óskýr. Norræna velferðarlíkanið er enn meir til umfjöllunar, eftir að fjármálakreppan hófst. Á arbeidslivinorden.org munu þeir sem vinna með vinnumarkaðsmál, vinnuumhverfi og vinnurétt geta fundið frétti, umræður og skoðanir um helstu mál. Norrænir straumar og stefnur verða í brennidepli en einnig verður fylgst vel með fréttum frá ESB.
Í fyrsta tölublaði vefritsins verður fjallað um fjármálakreppuna og hvernig hún hefur búið til nýja gerð af atvinnuleysi, og hvernig þeir sem enn eru í starfi eru neyddir til að taka á sig launalækkanir. Norrænu ríkin hafa orðið misilla fyrir barðinu á kreppunni, þar sem atvinnuleysi er þrisvar sinnum meira í Finnlandi, á Íslandi og í Svíþjóð en í Danmörku og Noregi.
Norska atvinnurannsóknastofnunin gefur ritið út, fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar. Atvinnulíf á Norðurlöndum kemur út á þremur norrænum tungumálum, dönsku, norsku og sænsku. Áskrift og lestur á fréttaritinu eru ókeypis.
Tengiliður: Ritstjórinn Berit Kvam; Berit.Kvam(ät)afi-wri.no
www.arbeidslivinorden.org
E-post: Antra.Carlsen(ät)vox.no