Frá ”Best practice” til “Future practice”
SCKK - Miðstöð færni og gæðaþróunar í Danmörku (Statens center for kompetence og kvalitetsudvikling) hélt ráðstefnu þann 15. júní þar sem starfsgleði, þróun og færni á opinberum vinnustöðum var meginumfjöllunarefnið.
Otto Scharmer og Steen Hildebrandt vörpuðu fram spurningum um hvernig við færumst frá ”Best practice”, það er að segja frá því sem tilheyrir fortíðinni, gömlum venjum og hugsanagangi yfir í það sem felst í því að þróa nýjar hugmyndir og aðgerðir eða í ”future practice”. Starfsmenn á fjölda vinnustaða innan hins opinbera sem hafa tileinkað sér kenningar Scharmers lýstu reynslu sinni af hugmyndafræðinni í reynd. Umræður, bæði í tengslum við fyrirlestra og í kynningum í vinnustofum, spunnust um hvað ylli endurteknum mistökum bæði í náms- og færniþróunarverkefnum þrátt fyrir ítrekaðar rannsóknir og annars konar mat. Hægt er að nálgast fyrirlestrana á heimasíðu SCKK http://konference09.sckk.dk/node/26
SCKK hefur gefið út ýmsa bæklinga um efnið, þar á meðal: Greining færni og nýskapandi námsferli, sem einkum beinist að færnigreiningu innan AMU. Ennfremur hvernig hægt er að hvetja starfsfólk til þess að taka þátt í greiningu á færni á vinnustað. Bæklingana er að finna á www.sckk.dk/db/filarkiv/3279/SCKK_IKV_single.pdf.
E-post: Maria.Marquard(ät)skolekom.dk