Allir um borð í loftslagsrútuna!
Í Þrændalögum er loftslagsrútan á vegunum með góð ráð fyrir íbúana.
Akstur rútunnar er liður í upplýsingaherferð sem hrint er í framkvæmd af amtsmanninum, og rútan mun heimsækja öll sveitarfélög í fylkinu á þessu ári. Markmið verkefnisins er að koma í veg fyrir að íbúarnir fyllist vanmætti, viðhalda þátttöku og umræðu í samfélaginu um eina helstu áskorun nútímans.
Meginmarkmið verkefnisins “Ráðleggingar um loftslag” er að draga úr losun koltvísýrings með því að miðla upplýsingum um áþreifanlegar breytingar á lífsháttum. Með notkun tvinnrútu, sem er sérstaklega hönnuð fyrir verkefnið, á að sýna fram á tæknileg dæmi, miðla upplýsingum og síðast en ekki síst gefa sérmenntuðu fólki á sviði tækni- og samfélagsfræða tækifæri til þess að ná til fjölda fólks í markhópnum í öllum sveitarfélögum í Suður-Þrændalögum á árinu 2009. Margir aðilar leggja þessu samstarfsverkefni lið. Nánari upplýsingar um loftslagsrútuna má finna á:
www.kreativetrondelag.no/Klimabussen/
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no