Förstora eller Förminska
Nyckelord/Keywords
Nyckelordsök
Fritext/Free text
Sök/Search:

Nýr framhaldsskóli frá 2011

Samkvæmt áætlunum um endurskoðun á framhaldsskólastiginu verða gerðar fimm afgerandi breytingar á næstu árum.
Á starfsmenntabrautunum fækkar kennslustundum í almennum fræðigreinum en þess í stað fjölgar tímum í starfsþjálfun.
Strangari reglur verða settar um framboð staðbundinna námskeiða og sérhæfðra brauta.
Kröfurnar sem nemendur verða að uppfylla til þess að geta innritast á bóknámsbrautir breytast. Í framtíðinni verða nemendur að hafa lokið prófum í sænsku, ensku, og stærðfræði auk níu annarra greina til þess að eiga rétt á að leggja stund á nám til stúdentsprófs. Ríkisstjórnin mun á næstunni leggja fram tillögur um kröfur sem gerðar verða til innritunar á starfsmenntabrautir.
Tvenns konar lokaprófum verður komið á: stúdentsprófi og starfsmenntaprófi.
Breytingar verða gerðar á skipulagi námsbrauta. Boðið verður upp á nám á húmanískri braut og hagfræðibraut að nýju. Þá verður fjölmiðlabrautin hluti af félagsfræðibraut.

Áhrifa endurskoðunarinnar mun einnig gæta í fullorðinsfræðslu og mun að hluta til einnig eiga við um nám fullorðinna á framhaldsskólastigi.
www.regeringen.se/content/1/c6/12/64/61/66728528.pdf

E-post: Nils.Friberg(ät)kristianstad.se

Kommentera

 Välkommen att diskutera artikeln på vår Facebook-sida!