Greinilegur árangur menntunar á sviði velferðarmála
Umsóknir innan kvóta tvö bera vitni um greinilega fjölgun í framhaldsmenntun sem fellur undir menntamálaráðuneytið, fjölgunin nemur allt að 16 prósentum.
Fjölgun umsókna á einnig við um fjölmennustu greinarnar í Danmörku, hinar svokölluðu velferðarbrautir fyrir menntun leikskólakennara, kennara og hjúkrunarfræðinga. Samtals sóttu 16 prósent fleiri um kennaramenntun, en fjölgun umsókna þeirra sem vilja verða hjúkrunarfræðingar nam átta prósentum og fimm prósenta aukning er í fjölda þeirra sem sækja um að verða leikskólakennarar. Greinilegust er fjölgunin í starfsmenntun þar sem hún nemur 37 prósentum en á sama tíma fjölgar þeim sem sækja um menntun sem leiðir til prófs með fyrstu háskólagráðu um 12 prósent.
Margar útskýringar geta verið á þessari fjölgun, m.a. aukið atvinnuleysi í kjölfar efnahagskreppunnar sem bitnar helst á ófaglærðum sem og að ýmsum aðgerðum hefur verið hrint í framkvæmd til þess að styrkja menntunina m.a. hefur faglegt innihald verið bætt og sambandið á milli fræða og framkvæmdar verið styrkt. Flestar umsóknir um menntun sem fellur undir menntamálaráðuneytið eru um kvóta 1 en frestur til þess að sækja um samkvæmt honum er til 5. júlí og þess vegna má vænta enn frekari fjölgunar umsókna.
Meira...
E-post: Maria.Marquard(ät)skolekom.dk