Málþing um aðlögun innflytjenda með menntun
Í tilefni af formennsku Íslendinga fyrir Norrænu ráðherranefndinni verður haldið málþing um aðlögun innflytjenda með námi. Málþingið er haldið í samstarfi menntamálaráðuneytisins og Stýrihóps ráherranefndarinnar um nám fullorðinna, á hótel Selfossi þann 9. júní nk. Markmiðið er að ræða hvernig auðvelda má aðlögun fullorðinna innflytjenda í samfélögin á Norðurlöndunum með menntun. Málþingið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Sigrún Kristín Magnúsdóttir
E-post: sigrunkri(ät)frae.is