Kennslufræðileg gæði í alþýðufræðslunni m.t.t. þeirra sem hafa stutta menntun
Fræðslusambönd og menntasmiðjur vinna í sameiningu að verkefni í þeim tilgangi að þróa alþýðufræðslutilboð fyrir þá sem hafa stystu menntunina og síst hafa hug á að sækja sér frekari menntun. Samband menntasmiðja hélt ráðstefnu um rannsóknir og þróun þar sem sjónum var einkum beint að einstakri kennslufræði alþýðufræðslunnar. Ráðstefnan er hluti af þróunarverkefninu.
Sten Højrup og Steen Elsborg (NCK/DPU) lögðu fram bráðabirgðaniðurstöður af rannsóknum sínum. Niðurstöðurnar sýna, að það sem helst einkennir kennslufræði alþýðufræðslunnar, að hún er þátttakendamiðuð, byggir á reynslu, félagsskap og trausti, virkar afar hvetjandi fyrir þá sem hafa litla menntun og nám getur verið framandi fyrir. Skipulag og uppbygging ráðstefnunnar var með þeim hætti að þátttakendur fengu tækifæri til þess að hlusta á, ræða um og upplifa það sem helst einkennir alþýðufræðsluna.
Niðurstöðurnar eru birtar í nýjum bæklingi frá NCK (Miðstöð færniþróunar í Danmörku) “Hvatning og námsstílar – yfirlit yfir rannsóknir ” Í bæklingnum eru skilgreiningar á hvatningarhugtakinu og ljósi varpað á mismunandi flokka hvatninga. Á meðal þess sem þar kemur fram er að það er hvorki einfalt né línulegt samhengi á milli ákveðinna námsstíla og þátta sem virka hvetjandi. En hinsvegar skiptir miklu að leiðbeinandinn geti tengt fræðsluna við þann raunveruleika sem blasir við á vinnustað.
Bæklingur (pdf)
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna
E-post: Maria.Marquard(ät)skolekom.dk