Endurnýjun háskólanna
Ríkisstjórnin í Finnlandi lagði fram frumvarp til nýrra laga um háskóla, fimmtudaginn 19. febrúar s.l. Umbætur á háskólunum eiga að auka sjálfstæði þeirra og gera þá að sjálfstæðum lögaðilum. Háskólarnir verða annað hvort sjálfstæðir lögaðilar eða stofnanir sem falla undir tilheyrandi lagasetningu. Í nýju háskólalögunum er einni kveðið á um skipulag, umsýslu, fjármögnun og stjórnun háskólanna sem og málefni sem lúta að stúdentum og starfsfólki.
Markmið umbótanna er að skapa háskólunum betri starfsaðstæður og styrkja kennslu- og rannsóknir, efla gæði og árangur. Með því að auka sjálfstæði háskólanna gefst þeim tækifæri til að ná betri árangri á alþjóðlegum vettvangi.
Frumvarpið hefur verið undirbúið í nánu samstarfi við háskólana, stúdenta og starfsfólk auk annarra hagsmunaaðila. Fjallað hefur verið um frumvarpið m.a. á óformlegum umræðuvettvangi ríkisstjórnarinnar, menningarmálanefnd ráðherranna og fjárveitingarnefnd. Reynt hefur verið eftir megni að taka tillitt til þeirra athugasemda sem bárust eftir umsagnarferlið, sem fram fór á haustdögum 2008, og fella þær inn í frumvarpið.
www.minedu.fi/OPM/Tiedotteet/2009/02/he_yliopistolaki.html?lang=sv
E-post: Ingrid.Ronnow(ät)vsy.fi