Nám og þekking á krepputímum
Norska ríkisstjórnin birti 26. janúar sl. aðgerðir til þess að draga úr efnahagsvandanum. Þar er lagt til að framlög til áætlunarinnar um eflingu grunnfærni í atvinnulífinu verði aukin úr 38,6 milljónum norskra króna í 58,6 milljónir norskra króna eða sem samsvarar tæplega milljarði íslenskra króna. Þar að auki er stefnt að ná til þátttakenda á öðrum sviðum en í atvinnulífinu með auknu samstarfi við fræðslusambönd.
Grunnfærni í atvinnulífinu er áætlun þar sem fyrirtæki og opinberar stofnanir geta sótt um styrk til kennslu í lestri, ritun, stærðfræði og upplýsingatækni sem og aðgerða sem hvetja til náms. Fræðsluaðilar og stofnanir atvinnulífsins geta sótt um ásamt fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Styrkurinn á að styrkja grunnfærni launþega og atvinnulausra, sem eru í leit að vinnu, í því sjónarmiði að fækka þeim sem hverfa af vinnumarkaði og auka þátttöku í fræðslu og menntun.
Til þess að ná til fleiri í markhópnum vill ríkisstjórnin gera smávægilegar breytingar á efni áætlunarinnar. Markmiðið er að ná til:
- launþega í þeim geirum atvinnulífsins, sem eiga í vök að verjast vegna efnahagskreppunnar, eins og t.d. byggingariðnaðar, verslunar o.s.frv.
- atvinnulausra með nánara samstarfi við norsku vinnumálastofnunina, NAV .
- þátttakenda á öðrum sviðum en í atvinnulífinu með auknu samstarfi við fræðslusambönd.
Tillögurnar í heild er að finna:
www.vofo.no/images/file/stprp37.pdf
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no