Þriðji hluti atvinnu- og þróunaráætlunarinnar tilbúinn
Allt frá því að sænska ríkisstjórnin hrinti atvinnu- og þróunaráætluninni í framkvæmd árið 2007 var auglýst að öllum þátttakendum, sem hefðu þegið bætur í meira en 450 daga án þess að fá vinnu, myndi vera vísað á þriðja stig áætlunarinnar. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að gera nokkrar breytingar á fjölmörgum reglugerðum sem kveða á um eða lýsa þriðja stigi áætlunarinnar.
Vinnumiðlanir eiga að bera ábyrgð á þriðja stigi atvinnu- og þróunaráætlunarinnar. Vinnumiðlunirnar eiga að bjóða þátttakendum pláss í fyrirtækjum og stofnunum bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera. Þátttakendur eiga samtímis að fá stuðning frá leiðbeinenda sínum. Aðgerðunum á þriðja stigi áætlunarinnar er ætlað að veita tækifæri til vinnu. Ráðningartímabil skal vera til langs tíma, þó ekki lengri en tveggja ára. Ríkisstjórnin hefur lagt il að stuðningur til fyrirtækja og stofnana sem veita þátttakendum vinnu verði 225 krónur á dag fyrir hvern þátttakenda.
www.regeringen.se/sb/d/11337/a/118601
E-post: Nils.Friberg(ät)kristianstad.se