Frumvarp ríkisstjórnarinnar „Aðgerðir vegna atvinnu og breytinga“
Sænska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp til laga og í því er meðal annars lagt til að framlög til fullorðinsfræðslu verði aukin í því skyni að:
1. Fjölga nemendum í starfsmenntaháskólum til viðbótar við þá sem leggja stund á viðurkennda starfsmenntun um eitt þúsund árið 2009, tvö þúsund árið 2010, og eitt þúsund árið 2011.
2. Auka á framlög ríkisins til framhaldsskólamenntunar fyrir fullorðna (iðn- og starfsmenntun). Fjölga á nemendum á þessu skólastigi u.þ.b. 3.200 á árinu 2009, og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi u.þ.b. 3.900 árið 2010 og u.þ.b. 1600 árið 2011. Þessi aukning er til viðbótar þeim framlögum sem þegar hafði verið gert ráð fyrir á sænsku fjárlögunum.
Til þess að hvetja atvinnulausa, eldri en 25 ára til þess að sækja sér starfs- eða iðnmenntun í framhaldsskólum á vegum sveitarfélaganna, fá þau tímabundna fjárveitingu til námsstyrkja samkvæmt hærri úthlutun á árin 2009 og 2010. Fjárveitingar samkvæmt hærri úthlutun eiga að nægja fyrir 80 prósentum af heildarnámsstyrk.
www.regeringen.se/content/1/c6/11/90/25/98794355.pdf
E-post: Nils.Friberg(ät)kristianstad.se