Fjölbreytni kostur í samkeppni
Í byrjun desember hlaut sveitarfélagið Lørenskog fjölbreytniverðlaunin 2008. 11,2% starfsmanna sveitarfélagsins tilheyra minnihlutahópum.
Í sveitarfélaginu er markvisst unnið að því að skipuleggja fjölbreytni. Dómnefndin hrósar sveitarfélaginu fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að skapa skilyrði fyrir fjölbreytni á öllum sviðum. Í Lørenskog sveitarfélaginu er litið á fjölbreytni sem kost í samkeppni og áhersla er lögð á að ráða hæft starfsfólk úr röðum íbúanna. Í sveitarfélaginu er stór hluti íbúanna sem á rætur sínar að rekja til minnihlutahópa og þessi auðlind er vel nýtt. Árið 2007 var sérstöku verkefni, þar sem markvisst var unnið að því að ráða innflytjendur, hrint í framkvæmd. Í rökstuðningi fyrir verðlaunaveitingunni kemur m.a. fram að hvívetna í sveitarfélaginu, frá minnstu einingum og upp í skóla, hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnanna sé lögð áhersla á fjölbreytni. Þetta sé gott dæmi um að fjölbreytni sé gagnleg, hún stuðli að virðisauka sem leiði til betra samfélags. Fjölbreytniverðlaunin eru veitt af atvinnu- og innflytjendaráðuneytinu í samstarfi við aðila atvinnulífsins. Lestu meira.
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no