Aðlögun með fullorðinsfræðslu og símenntun
Landsmiðstöð fyrir færniþróun í Danmörku (NCK) hrindir af stað nýrri rannsókn fyrir Norrænu ráðherranefndina um aðlögun innflytjenda í gegnum fullorðinsfræðslu og símenntun.
Rannsóknin verður framkvæmd sem samanburðargreining á kringumstæðum á Norðurlöndunum og á að leiða í ljós hvort unnt er með fullorðinsfræðslu og símenntun að auðvelda innflytjendum og afkomendum þeirra að aðlagast nýju samfélagi og ná fótfestu á vinnumarkaði.
Rannsóknin er framkvæmd í samstarfi við Háskólann í Turku, Háskóla Íslands, Gautaborgarháskólann og NTNU, Tækniháskólann í Noregi.
Rannsókninni lýkur í árslok 2009.
Meira: www.ncfk.dk/site.aspx?p=112&newsid1=7764
E-post: Maria.Marquard(ät)skolekom.dk