Sjálfboðaliðastörf eru einnig góður kostur fyrir innflytjendur
Sjálfboðaliðastörf eru mikilvægur þáttur í norsku samfélagi og frjáls félagasamtök leggja sitt af mörkum til þess að auðvelda innflytjendum og flóttamönnum að aðlagast nýju samfélagi. Frjáls félagasamtök eru mikilvæg og brýnt er að þau leggi sitt af mörkum til þess að ná markmiðum um samfélag fyrir alla. Hvernig geta þau sinnt þessu hlutverki? Sú spurning var lögð fyrir vinnuhóp sem komið var á laggirnar vorið 2008 í atvinnu- og innflytjendaráðuneytinu. Hópurinn hefur kynnt fjölda tillagna í nýrri skýrslu.
Ein af tillögunum felst í að bæta samskipti á milli sveitarfélaga og frjálsra félagsamtaka, í annarri er lagt til að mennta samfélagsleiðsögumenn. Lesa má um fleiri tillögur á slóðinni: Pdf
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no