Norge
Norðmenn í vandræðum með upplýsingatækni
27 prósent Norðmanna notfæra sér upplýsingatæknina lítið eða ekkert . Flestir þessara hafa hvorki þörf fyrir né áhuga á að bæta úr því.
Í skýrslu Vox sem ber nafnið; Borgarar og notendur eru birtar niðurstöður könnunar sem gerð var í því augnamiði að efla vitneskju um hæfni íbúa Noregs til þess að nýta upplýsingatækni og komast að því hvort stafræn skil séu meðal íbúanna.
– Slök hæfni á sviði upplýsingatækni getur haft alvarlegar afleiðingar á mörgum sviðum daglegs lífs nútímans. Haldi þróuninni fram sem horfir, þá getum við átt á hættu að stór hluti íbúanna endi utan við samfélag framtíðarinnar, er haft eftir Turid Kjølseth, framkvæmdastjóri Vox.
Þú getur lesið meira hér: www.vox.no/templates/CommonPage.aspx?id=3191
E-post: Ellen.Stavlund(ät)vofo.no