Finland
Norrænt samstarf um rannsóknir á námi
Rannsóknarmiðstöð um nám við háskólann í Åbo hefur verið valin í hóp norrænna öndvegisrannsóknasetra og hlotið fjárveitingu til áranna 2009 – 2011.
Norræni rannsóknasjóðurinn, Nordforsk hefur tilnefnt Rannsóknamiðstöðina um nám í hóp norrænna öndvegisrannsóknasetra ásamt miðstöðvum í Gautaborg, Osló og Tallin. Verkefnið sem hefst í byrjun næsta árs ber heitið NordLearn – Norræn miðstöð rannsókna um nám og miðlun. Markmiðið er að styrkja rannsóknir og vísindamiðaða framhaldsmenntun við miðstöðvarnar, sem beina sjónum að þeim áskorunum og tækifærum, sem blasa við námi studdu tækni og miðlun. Nordforsk hefur veitt á aðra milljón norskra króna (hátt í 20 milljónir íslenskra króna) til verkefnisins.
www.otuk.utu.fi/en
E-post: Ingrid.Ronnow(ät)vsy.fi