Danmark
Lýðháskólar vilja samstarf við formlegar námsleiðir
Menntamálaráðuneytið leggur til hliðar 3 mill. DKK á hverju ári frá 2007 - 2009 til þess að styrkja lýðháskóla, hússtjórnar- og handverksskóla sérstaklega til þess að þróa líkön um samstarf milli lýðháskóla/Verslunarskóla og menntastofnana í formlega skólakerfinu.
Þetta kemur fram í fréttabréfi Félags lýðháskóla í Danmörku (FFD Foreningen af Folkehøjskoler i Danmark). Fjármagni til þróunarstarfsins er sameiginlega stjórnað af FFD og Félagi Hússtjórnar- og handverksskóla (FAHH Foreningen af Husholdnings- og Håndarbejdsskoler). Sérstök nefnd hefur það hlutverk að halda utan um úthlutun á fjármagni og hefur nefndin skipt því í tvo sjóði.
• Sjóður 1 styrkir verkefni, sem hafa það að markmiði að koma á samstarfi milli lýðháskóla/Verslunarskóla og formlegra menntastofnana.
• Sjóður 2 styrkir verkefni sem hafa það að markmiði að styrkja hugmynda-, uppeldis- og menntunarfræðilega þróun skólakerfanna.
Leiðbeiningar um samstarf
Í framhaldi af vinnu nefndar um lýðháskóla um að auka möguleika á samstarfi milli lýðháskóla og menntastofnana formlega skólakerfisins, hefur menntmálaráðuneytið látið vinna leiðbeiningar, sem útskýrð er með röð líkana yfir samstarf.
Sjá meira...
E-post: Maria.Marquard(ät)skolekom.dk