Sverige
Mælt með stofnun starfsmenntaháskóla
Ráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Anders Franzén, leggur til að öll starfsmenntun eftir framhaldsskóla, sem ekki er í boði í háskólum, verði safnað saman undir eitt svið, Starfsmenntaháskóla. Skólinn gæti boðið upp á framhaldsbrautir fyrir þá sem eru með færni framhaldsskóla en háskólarnir hafa ekki slíka braut fyrir þennan hóp nemenda. Markmið með tillögunni er einnig að stuðla að og tryggja aðgang að þeirri starfsfærni sem atvinnulífið óskar. Þessu nýja sviði verður stýrt af nýrri stofnun.
Starfsmenntaháskólanum er ætlað að taka mið af þeirri starfsmenntun sem þegar er í boði eftir framhaldsskóla og byggja ofan á hana. Það er markvisst fagnám (s. kvalificerade yrkesutbildningen KY), fagnám (s. påbyggnadsutbildning PU) innan fullorðinsfræðslu sveitarfélaganna, áfanganám (s. de kompletterande utbildningarna) ásamt iðnnámi fullorðinna í vissum starfsgreinu (s. lärlingsutbildningen för vuxna till vissa hantverksyrken), en þessir menntunarmöguleikar munu hverfa með tilkomu hins nýja Starfsmenntaháskóla. Þar að auki hafa verið ræddir möguleikar á að hægt verði að færa styttra hagnýtt háskólanám yfir í Starfsmenntaháskólann. Einnig að starfsmenntun, sem er í boði á vegum lýðháskólanna, verði af sambærilegum gæðum og sú menntun sem fæst í Starfsmenntaháskólanum.
Lagt hefur verið til að tvenns konar próffyrirkomulag. Hið almenna lokapróf verður kallað starfsmenntaháskólapróf og er þess krafist að þátttakandinn hafi að fullu lokið því sem krafist er til þess að vera viðurkenndur í öllum atriðum menntunar sem er a.m.k. 60 vikur að lengd. Fyrir hæfnisstarfsmenntaháskólapróf verður krafist, annars vegar að menntunin vari í 80 vikur og hins vegar að minnst fjórðungur námstímans fari fram á vinnustað. Ennfremur er krafist prófavinnu og að skupuleggjandinn uppfylli vissar kröfur.
Meira á slóðinni
www.regeringen.se/content/1/c6/10/13/62/6fb921b9.pdf
E-post: Gun.Lundberg(ät)kristianstad.se