Starfsmenntaráð auglýsti í febrúar sl. eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu. Félagsmálaráðherra úthlutaði sl. föstudag, rúmlega 46 milljónum króna til 19 aðila vegna 32 verkefna, vegna ársins 2008.
Tvö verkefni fengu sérstaka athygli og voru sérstaklega kynnt við úthlutina. Annað verkefnið var Staða og menntun starfsmenntakennara á Íslandi. Verkefnið er rannsóknarverkefni og unnið í samstarfi við SRR-Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf, Kennaraháskóla Íslands og Kennarasamband Íslands. Umsækjandi er
Hróbjartur Árnason, lektor við Kennaraháskóla Íslands. Tilgangur verkefnisins er að afla haldgóðra upplýsinga um stöðu starfsmenntakennara á Íslandi með tilliti til menntunar, símenntunar og framtíðarsýnar. Þess má geta að Hróbjartur Árnason stýrir fjarkennsluhópi NVL.
Hitt var verkefni Íslandspósts hf. Ekru-starfsþróun sem er áhugavert sýnishorn þeirra verkefna sem borist hafa Starfsmenntaráði þetta árið. Markmiðið er að hanna námskeið fyrir starfandi bréfbera hjá Íslandspósti hf. Áhersla verður lögð á sjálfseflingu starfsmanna, líkamsbeitingu og þá þætti sem eru til þess fallnir að auka trú starfsmanna á eigin getu og færni og með því að styrkja stöðu þeirra sem einstaklinga og starfsmanna. Verkefnið er unnið í samstarfi við Mími-símenntun og Póstmannafélag Íslands.
Fjölmargar fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar fengu styrk og þess má geta að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, sú stofnun sem hýsir NVL á Íslandi, fékk styrk til að rannsaka Árangur lestrar- og skriftarnámskeiða fyrir fullorðna.
Upplýsingar um úthlutun styrkjanna er á
www.starfsmenntarad.is