Finland
Minni undirbúningur fyrir kennarastarfið þrátt fyrir aukna þörf þeirra á menntun
Krafan um aukið vinnuframlag kennara eykst sífellt. Auk þess að vera vel að sér í faginu þarf kennari einnig að vera fær um að koma til móts við stærri hóp innflytjenda og bregðast við alls kyns álitamálum sem upp koma í fjölmenningar hópi. Kennari á að efla og styðja við tilfinninga- og félagslega hæfni nemenda sinna o.s.frv. Á sama tíma og kröfurnar aukast minnkar undirbúningurinn skv. rannsókn sem gerð hefur verið við Jyväskylä háskólann.
Rannsóknastofnun í uppeldisfræðum við Jyväskylä háskólann rannsakaði menntun kennara með því að bera saman menntun þeirra frá árinu 1998 við þá menntun sem kennarar fengu árið 2005. Yfir 2000 kennarar svöruðu spurningum, bæði 1998 og 2005. Kennarar úr grunnskólum, menntaskólum, starfsmenntun og óformlegu fræðslunni tóku þátt. Skv.
Ellen Piesanen sérfræðingi getur grunnnám kennara ekki boðið upp á alla þá þekkingu og færni sem kennarar þurfa vegna starfs síns. Þessi rannsókn dregur fram aukna áherslu og þörf fyrir framhaldsmenntun kennara.
Samantekt um rannsóknina er á
http://ktl.jyu.fi/img/portal/6050/G029.pdf.
E-post: Carola.Lindholm(ät)vsy.fi